WARNING: unedited
liljon
21.09.2010 19:00:39 / jonan

sökknuður

í fyrsta sinn á þessari síðu veit ég ekkert hvað ég á að skrifa. Þótt ég sé búin að hugsa um það í 2 ár eða frá því þú kvaddir þennan heim á þennan hræðilega hátt. Mig langaði bara að skrifa nokkrar línur, flestir hafa skrifað á facebook, á blogginu eða á opinberum síðum en það er bara ekki fyrir mig þess vegna valdi ég þennan stað til að setja þetta á. Ég hef lesið þessa síðu fram og til baka og hugsað um þann tíma sem við áttum saman, sem var alveg óendanlega góður en allt of stuttur. en það sem einkenndi þessa síðu var líf okkar á okkar hátt, enginn gat skilið neitt því helmingurinn sem skrifað var um hér var einkahúmor okkar tveggja.

   Það fyrsta sem maður sá þegar maður kynntist þér var alveg ótrúlegur karakter, hress og kát stúlka sem var til í hvað sem er, enda hefðum við aldrei kynnst svona vel án þess. þegar við fluttum í borg óttans þá sögðu margir að englavængirnir hefðu orðið eftir heima en ég sé sko alls ekki eftir þeim, þetta var bara sá allra besti tími sem ég hef átt, þú komst með svo góð ráð um allt og stundum ekki neitt en leyfðir manni samt að ráða þótt að þú vissir vel að það væri bölvuð vitleisa en komst með réttu svörin þegar maður þurfti þess, sem mér fannst alveg frábært. Þótt við  værum mjög ólíkar á margan hátt áttum við samt okkar sameiginlegu hluti.

Þegar ég heyrði í þér miðvikudaginn 17 september fyrir rúmlega tveimur árum síðan var eins og allt væri í góðu lagi, ég  ákvað að nú væri löngu kominn tími á að tala við þig öðrvísi en í gegnum msn, svo mánudaginn á eftir fór ég og verslaði mér tölvu fyrst mín var farin og passaði að hún væri með webcam og fór og verslaði  líka headphone því það gengi ekkert upp að geta ekki talað við þig. Hugsaði með mér betra seint en aldrei, en það var of seint.

   Að morgni þriðjudagsins 23 september næ ég ekki að svara símanum og venjulega þegar ég þekki ekki númerið hringi ég ekki til baka, en það var einhvað sem sagði mér að ég yrði að hringja strax til baka í þetta skipti. Þegar Lena svaraði vissi ég strax að það var eitthvað að, og þegar hún sagði mér þessar hræðilegu fréttir þá var eins og allt hefði hrunið. Maður varð svo reiður og sár að maður vissi ekkert hvað maður átti að gera, enda gat maður ekkert gert nema bíða og sú bið er enn þann dag í dag og ekkert gerist en maður heldu alltaf í vonina. Mér fynnst fjölskyldan þín svo óendanlega sterk, skil bara ekki hvernig hún fer að þessu.

   Ég hef hugsað um þig á hverjum degi í þessi 2 ár og sökknuðurinn minnkar ekkert og mun ekki heldur gera, tíminn læknar ekki öll sár. Þú varst sú allra besta vinkona sem ég hef nokkurntímann átt og ég sakna þín svo endalaust mikið ég ætla að kveðja með þessu ljóði sem þú sýndir mér í Mávahlíðinni og talaðir um að svona vildir þú að aðrir hugsuðu um þig þegar þú værir farin

Þó ég sé látinn,
harmið mig ekki með tárum.
hugsið ekki um dauðann
með harmi og ótta.
Ég er svo nærri
að hvert eitt ykkar tár
snertir mig og kvelur,
þó látinn mig haldið.
En þegar þið hlægið og
syngið með glöðum hug
sál mín lyftist upp í mót,
til ljóssins.
Verið glöð og þakklát
fyrir allt sem lífið gefur.
Og ég, þó látinn sé, tek þátt
í gleði ykkar yfir lífinu


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.01.2007 13:07:34 / jonan

nýtt ár tekið við

Nú eru jólin búin og 2006 liðið og 2007 gengið í garð.
og flottasta jólagjöfin í ár var geðveikt flott úr sem ég fékk frá ella mínum:haha:, svo fengum við gjafakort í kringluna sem á eftir að nýtast okkur vel og margt flera.

En fyrst 2006 er liðið er þá ekki timi til kominn að fara smá yfir það ár.
Janúar
Það er allavega á hreinu að það var alveg frábært í alla staði. Byrjunin var nú eins og veturinn var, djamm djamm djamm allar helgar, bíllinn hennar hrafnhildar bilaði en hún var alveg æst í að fara á eitthvað splass party í keflavík um miðjan janúar8|, jújú og fyrst það var djamm skellti ég mér með, og sé sko ekki eftir því, Þar kynntist ég fábæru fólki td. henni Rósu Maríu og Katrínu og Ella vini hennar sem ég bý með í dag.
Febrúar food and fun var eftir mikla og strangann undir búning og fengum við hæðstu einkunn sem gefin hefur verðið fyrir það verkefni í skólanum. Svo var haldið upp á konudaginn þar sem Elli gaf öllum stelpunum rós :D.
Mars byrjað á skemmtilegustu sumarbústaðar ferð þar sem ég eignaðist soldið sem ég var búina að þrá í slodinn tima;) og á enn þaðnn dag í dag:D
og svo má ekki gleyma afmæli Katrínar prinsessu og einnig afmælinu hennar Hrafnhildar en besta gjöfin var kærasti;)8| . svo eignaðist hún bíl svo ég gat sofð lengur en til 5.25
Apríl Þá átti ég afmæli og varð 21 árs, ég fékk peysu og dekurdag í baðhúsinu
sem var bara algjör snilld, og einnig flotta skó hálsmen og margt fleira, en því miður þurfti ég að fara norður daginn fyrir afmælið mitt til að æfa mig fyrir sveinspróf :(.
Maí var bæði mikil gleði og sorg. Gleðin er sú að ég náði sveinsprófinu og var orðinn kokkur, átti reindar pínu eftir að samning. Ég hélt upp á útskriftina mína með mínum nánustu um daginn en svo um kvöldið fór ég, elli, rósa, hrafnhildur, og lena út að borða og svo í ógleymanlega limmo ferð hehe það ver ekkert smá gaman, ég fékk fullt af flottum gjöfum td, æðislegt hálsmen, ipot, og geðveikann kertastjaka.
En því miður gat mánuðinn ekki endað neitt sérstaklega vel, því ég þurfti að fara norður til að klára samninginn:( en svona er þetta bara.
Júní það sem stóð upp úr í þessum mánuði voru tónleikarnir með bubba 06.06.06 en þeir voru stórkostlegir, svo kom elli og Guðný til mín eina helgi sem var alveg æðisleg, Guðný fór á hestbak en elli greiið var ekki alveg tilbúinn til þess hehe
Júlí Elli átti afmæli og fór ég suður til hans helgina fyrir það, fór í brúðkaup til frænku hans og hitti fullt af ættingjum þar að meðal foreldra hans í fyrsta skiptið, uff ég verð eiginlega að viðurkenn það að ég var með smá hnút í maganum, en svo komst ég að því að þau voru bara mjög fín.
ekki má gleyma því að talvan mín bilaði í 5 skipti:evil: á 6 mánuðum.
Ágúst lífið er yndislegt, já það var bara skellt sér á þjóþhátið í vestmanneyjum og ekkert smá mikið stuð sérstaklega þegar elli kom á sunnudeginum uff fullari mann man eg ekki eftir að hafa séð og greyið stelpurnar á flugvellinum fengu engann svefnfrið:haha:. En það besta við þennan mánuð var endinn á honum, því voru 4 ár síðan ég skrifaði undir samninginn, og ég gat flutt suður:haha:
September 1 september kom ég suður, en ég sagði engum það nema Hrafnhildi hinum sagði ég að ég kæmi 2 sept, en það tókst nú samt ekki alveg eins og það átti að takast því elli var bara eiginlega bara fúll, úpsí:S. en þetta var samt langþráð bið ég var alflutt suður eftir langa bið:haha:. og allur bærinn tók á móti mér með þvílíkri hátið sem þeir kalla ljósanótt.
svo fékk ég vinnu á lækjabrekku sem ég er enn að vinna í dag og líkar bara ágætlega.
Október ég eingnaðist nýjann bíl toyota Avensis rauður geðveikt flottur 99 árgerð:D. Guðný litla prinsessan hanns ella átti 6 ára afmæli, svaka stór skvísa 6.Okt
Nóvember þær stöllur rósa og ólöf áttu afmæli 3 og 6 nov og heldu þær upp á það með svaka partyi, svo var boðið mér til útlanda en því miður komst ég ekki því ég þurfti að vinna og gat ekki tekið frí vegna þess að ég var ný búin að frekjast til að skipta um vakt og komst yfir á vaktina hans ella, svo voru líka jólahlaðborðin að byrja.
Desember ég hef bara aldrei á æfinni verið svona snemma í að kaupa allar jólagjafir uff bara búin með allar um miðjan:D. En þessi jól voru nú bara frekar skrítin því þetta voru fyrstu jólin sem ég var ekki hema hjá mömmu, ég var hjá teindó og var það bara mjög fínt, svo um áramótinn var ég heima í kef og elduðum við hangikjöt umm namm namm og elli skaut upp tertum og höfðum það bara mjög gott

nenni ekki að skrifa meir, þangað til næst bæbæ

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.12.2006 11:44:30 / jonan

komin tími fyrir smá breitingu

Já mér fannst vera kominn tími á smá breitingu hér á síðunni, það er nú einu sinni að koma jól. annars er nú bara allt gott að frétta af mér, farin að hlusta á jólalög og búin að kaupa allar jólagjafir og á aðeins eftir að koma einni frá mér. vona að fólk verði nú ekki fúlt yfir að ég sendi ekki kort en ég skal senda sms í staðin.

hér kemur niðurstöður úr síðustu skoðunarkönnun

44% ó já ég er sko algjört jólabarn

22% nei það er ekki einusinni kominn desember 22%

0% jólaskapið kemur ekki fyrr en að morgni 24 des

33% já allt klappað og klárt, gjafir kort og skreitingar

Annars er hrafnhildur að koma heim 21 des, og vonandi að maður geti kannski séð hana smá áður en hún fer norður. en hún lena kemur aðeins fyrr eða 19 des.



» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 20:15:16 / jonan

19 dagar til jóla

Góðan og blessaðan daginn.
Ég er nú eiginlega alveg hætt að nenna henda einhverju hérna inn en ég skal reina mitt besta.
Það er nú bara allt fínt að frétta af mér, ég fór í gær og keypti allar jólagjafirnar sem eiga að fara norður og búin að pakka öllu inn, geggjað dugleg fynnst mér ;), á bara eftir að kaupa handa Ella en er búin að ákveða hvað það verður.
    Ég á ég á enþá eftir að finna eitthvað til að vera í á jólunum, kaupi bara allt annað:$. það hlítur að reddast.
    Svo er nátturulega búið að skreita heima og þrífa allt hátt og látt en hún rósa á nú eiginlega allan heiður af því. þannig að við tökum þátt í því að lýsa upp skammdeigið.

Nú eru bara 19 dagar til jóla, og mig er bara farið að hlakka þónokkuð til, þrátt fyrir að þetta verði skrítin jól þar sem ég fer ekki norður um jólin.

Og bara láta allt vita þá nenni ég ekki að senda jólakort í ár vonandi verður enginn alvarlega sár.

Löggan hefur greinilega ekkert að gerast því enn stoppar hún mig út af engu er alveg að verða brjáluð, ég bara skil þetta ekki :evil:

jæja læt þetta duga í bili
bæbæ

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 17:45:28 / jonan

já það er víst rétt hjá henni Hrafnhildi

Já það er víst soldið langt síðan ég hef skrifað hér inn síðast.
En það sem hefur á daga mína drifið síðasta mánuðinn er

Ég held áfram á lækjbrekku en er búin að skipta um vakt og er bara sátt við það.

það var boðið mér til útlanda en ég komst ekki vegna vinnu,:evil: en ég bara læt bjóða mér aftur einhverntíman seinna;)

ég fór út að borða og svo í lúxussalinn í bíó og það kostaði ekki meira né minna 1900 einakrónur, þetta er bara geðveiki, er bara ætlast til að maður skíti peningum eða hvað, maður er meira að segja hættur að geta farið í bíó því í venjulegann sal kostar það 900 kr sem er nátturulega bara allt of mikið.

svo fór ég í afmælispartý til Rósu og Ólafar sem var bara mjög gaman, þrátt fyrir að ég hafi farið snemma að sofa, rósa fékk skuata og svo hún geti notað þá annarstaðar en úti á bílaplani þá gáfum við henni 10 skipti á skauta, og var þetta frá mér ella og ólöfu, svo fékk ólöf náttföt.

svo fór ég norður en ég get nú ekki sagt að það hafi verið skemmtileg ferð

En ég er að fara til hennar Ellu Möggu frænku og Björgvins bestafrænda á morgun :Dog hlakka ekkert smá til, hef ekki séð þau allt of lengi8|

jæja ég man ekki meir en endilega látið mig vita ef ég er að gleyma einhverju

bæbæ

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 11:43:32 / jonan

Löggan og ég

hvað er málið með mig og löggur, Ég ætla bara taka það fram að ég hef aldrei verið tekinn fyrir ofhraðann akstur eða einhvern glæfraakstur, en fyrir tæpum tveim árum þá var ég að  koma norður og mætti strax í vinnu og var að vinna í fimm daga í röð í um 13 tíma, og löggan stoppaði mig þrisvar á þeim tíma því það vantar eitthvað ljós, en ég var nú ekki að nenna að láta skipta fyrir eða eftir vinnu en löggan var nú ekki alveg að heldur stoppaði mig aftur og aftur, svo ef það er eitthvað átak hjá löggunni og hún stoppar alla til að gá að ökuskírteinum þá lendi ég alltaf í því, alveg að verða brjáluð af því. Svo núna á miðvikudagskvöldið þegar ég var að koma heim úr vinnu um 12.30 þá stoppaði hún mig aftur út af því það vantaði ljós, en ekki nennti ég að fara þá og láta skipta því ég þurfti að leggja af stað í vinnu kl 9.00 á fimmtudagsmorguninn og þegar ég var á leiðinni heim á svipuðum tíma þá var ég aftur stoppuð út af þessu ljósi sem vantar, hvað er málið, svo komast þeir sem keyra eins og brjálæðingar og keyra á óskoðuðum bílum og svona alltaf fram hjá löggunni, því hún er svo upptekinn að taka mig:evil: En hann elli minn sagðist ætla að redda þessu fyrir mig og skipta um peru, og þá vonandi getur löggan látið mig í friði;)

En annars er allt fínt að frétta að mér, er að fara í bláa lónið á eftir og svo bara í innflutningspartý hjá honum Gústa, það verður alveg pottþétt að það verður bara stuð, svo verður bara letidagur á morgun, með beikon egg og spaghetti, umm nammi namm, en þar sem Rósa er með einhvern móral og nennir ekki að djamma í kvöld vonast ég nú til að hún verði bara búin að elda þegar við Elli vöknum svo við þurfum nú ekki að gera neitt :haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 10:32:32 / jonan

Blóm

Um daginn þegar ég var á leiðinni í vinnu þá var ég að hlusta á útvarpið og heyrði þar að fólk var að tala um blóm og hvort það væri peningasóun að gefa blóm því þau deyja bara og skilja ekkert eftir sig. og allir sem hringdu inn voru bara alveg sammála því það væri svo margt annað hægt að gera fyrir peningana.
Ég verð að segja það að ég varð eiginlega alveg brjáluð:evil:, Ok mér fynnst ef það er verið að gefa blóm bara því fólk nennir ekki að leita að afmælisgjöfum eða brúðargjöfum og ætlar bara að fara í blómabúð til að gefa eitthvað þá fynnst þá er það kannski ekkert sniðugt. En allavega fynnst mér allt í lagi að gefa blóm og fynnst alveg æðislegt að fá þau sjálf:D og þótt þau deyji þá skilja þau samt alveg helling eftir sig, ég var td að henda dauðum blómum sem ég fékk um daginn og þótt þau séu komin í ruslið þá skylja þau samt helling eftir sig, :haha:

Hvað fynnst ykkur á fólk að hætta gefa hvort öðru blóm eða,

allavega þeir sem eru á móti því hafa ábyggilega aldrei fengið blóm bara svona aðþví að einhver var að hugsa til manns og ákvað að gefa þeim blóm.

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 10:25:19 / jonan

komin á nýjan bíl

Ætla bara láta alla vita að ég er komin á nýjan bíl þannig að nú er eingin hætta á að ég stoppi vegna þess að bíllinn hafi hrunið.
Nýi bíllinn minn er Toyota Avensis 99 árgerð algjör draumur (og meira að segja í stelpulit;)), og veit ég að sumir eru ánægðir með það. 8)
Og fer ég fyrstu ferðina mína á honum til akureyrar næsta mið, eins gott að hann standi sig hehe.

Nú er Hrafnhildur lögð að stað í bakpoka ferðalagið mikla en ekki gekk nú vel til að byrja með því hún fann ekki vegabréfið....... en þegar við vorum búnar að leita í öllu dótinu hennar þrisvar var haldið af stað í geymsluna hennar laugu og byrjað að leita þar, til allrar hamingju fannst þetta vegabréf í tösku þar, en kukkan var þá að ganga fjögur og aðeins þrír tímar í að hún ætti að leggja af stað. Sem betur fer náði hún að leggja af stað á réttum tíma:haha: ég segi nú bara fall er farar heill.

Annars er nú lítið að frétta af mér, ég er bara að vinna en samt að í leit að annari vinnu  þannig ef einhver veit um vinnu handa mér á þeirri vakt sem var í fríi síðustu helgi má endilega láta mig vita.

Jæja nú ætla ég að fara tæma gamla bílinn og  koma honum  alveg frá mér, uff það verður nú gott:haha::haha::P

 
 


» 6 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 16:01:15 / jonan

komin með vinnu en vantar bíl

þá er ég loksins komin úr letigírnum og fór í dag í bæinn í leit að vinnu, til að byrja með leit þetta ekkert rosalega vel út en svo fékk ég vinnu á lækjabrekku en á vitlausri vakt:( en það verður að duga í bili og ef ég get skipt um vakt og líkar vel þarna þá vona ég að þessi vinna endist eitthvað, svo er ég komin með fullt af stöðum þar sem ég get tekið aukavinnu sem er bara ágætt.

en enn vantar mig bíl, ég hef ekki hreift bílinn minn í marga daga og þegar ég var loksins búin að ná að kveikja á honum í morgun kom þetta svaðalega ískur uff og svo held ég líka að bremsurnar séu búnar:evil:, ég vonast nú til þess að ég geti keypt bíl í næstu viku:haha:

annars er bara voða lítið að frétta af mér er að fara í bláa lónið, við rósa vorum svo góðar að bjóða hrafnhildi og lenu í lónið því þær stöllur eru að yfirgefa klaka eftir aðeins nokkra daga:cry: en það verður bara gaman hjá þeim;)

jæja nenni ekki að skrifa meir

þangað til næst bæbæ


» 9 hafa sagt sína skoðun

05.09.2006 10:47:41 / jonan

alflutt frá Akureyri

Jæja þá ér ég loksins flutt til Keflavíkur og gjörsamlega búin að leggja íbúðina hjá Ella og Rósu í rúst, herbergið hans ella er allt út í fötum8| og stofan farin á hvolf út af einu sjónvarpi:$. En það ætti að vera nægur tími til að laga það þar sem 66% íbúana í þessu húsi er atvinnulaus8|

Svo var það síðasta helgi en hún var algjör snild. Allir keflvíkingar tóku sig saman og héldu heljarinnar komuhátið fyrir mig:D, og byrjaði upphitunin á föstudaginn þar sem ég átti ekki að koma fyrr en á laugardaginn, en allt í einu var ég bara komin á föstudagskvöldinu, elli var nú samt ekki alveg sáttur með aðég hefði ekki látið hann vita en svona er þetta bara, en þessi hátið sem var haldin fyrir mig er kölluð ljósanótt og mun hún vera haldin árlega til að minna á að ég  hafi flutt á þessum tíma, en ég verð eiginlega að segja að flugeldasíningin hafi staðið upp úr, eða búningarnir eða bílasíningi, æ ég veit það ekki en þetta tókst mjög vel hjá þeim.

svo var bara skellt sér í bíó á sunnudagskvöldið á myndina little man og mæli ég mjög með henni ef þið viljið komast í mjög gott skap og fá að hlæja í allavegana tvo tíma.

en það er allavega alveg á hreinu að Hrafnhildur á að kalla sig Hrafnhildur

hér kemur niðurstaðan úr síðustu skoðunarkönnun




» 3 hafa sagt sína skoðun

28.08.2006 13:56:57 / jonan

Pakka þrífa pakka þrífa svo bara flytja

góðan daginn gott fólk.

ég ætla bara að láta vita að ég er á lífi

hef bara ekki tíma fyrir bloggið næstu daga því ég er að pakka þrífa bakka þrífa og svo bara flitja suður til keflavíkur næstu helgi fyrir fullt og allt síðasta helgin í vinnuni búin og hún var bara fullkomin, brjálað að gera á laugardag en sunnudagur á sunnudaginn

jæja ég ætla fara halda áfram að pakka

ps. öll hjálp vel þegin


» 2 hafa sagt sína skoðun

20.08.2006 14:51:28 / jonan

Eyjar

jæja það hefur nú ýmislegt gerst hjá mér síðusta hálfa mánuðinn.

í fyrsta lagi fór ég til eyja og ætla ég nú að koma með stutta ferðasögu um það.

Á miðvikudagskvöldinu var brunað suður eftir vakt og kom ég til keflavíkur kl 5 um morguninn hellt mér uppi með kók og tópas en ég hafði ekki drukkið kók í 25 daga ótrúlegt en satt. jæja það var reint að sofna en ekki gekk það nú vel og svo var maður bara vakin klukkan 9 um morguninn, svo var komið við í búð og keyptar ein nota myndavélar fyrir 10000 krónur, síðan brunað til reykjavíkur þar sem var stoppað og fengið sér að borða á sprengisandi, ekki voru nú allir sáttir með þjónustuna þar og fékk til að mynda elli ekki hakk og spaghettiið sem hann var búinn að pannta sér og pantaði hann sér í staðinn lassa sem hann fékk svo aldrei en hann á nún a inni pizzu þar.
svo var bara brunað af stað og bara  svo allir viti þá á ekki að fara til selfossar þegar maður fer til Þorlákshafnar :$. Þegar á þorlákshöfn var komið þurfti ein að fara til læknis út af ánægju síðustu daga ;).

Loks þegar við vorum búnar að finna stæði fyrir bílinn hennar hrafnildar fórum við að ná í bílana og koma bílnum hennar rósu í röðina komu tvær úr fíknó að bílnum hennar hrafnhildar og spurðu hana hvort hún hefði komist í kast við lögin, spurðu hana um skilríki og hringdu inn til að tékka á henni, svo voru þeir með hund sem hlítur að vera sporhundur, allavega tókst honum að spora út allann bílinn hennar hrafnhildar 8| svo kom ég í mínu mesta sakleysi og þeir báðu mig líka um skylríki og hringdu til að tékka á mér8|

jæja þegar ég og rósa vorum búnar að smygla inn í herjólf nokkrum bjórdósum var bara tekið frá eitt klósett og hellt í sig, meira man ég nú ekki mikið frá ferðinn í herjólfi nema ógleði og æla:evil::evil:, svo þegar við komumst loks til eyja þá var svo vont veður að við fórum í íþróttahúsið og sváfum þar, kl 8 um morguninn var farið í skoðunarferð um eyjuna og fengið sér pylsa og bjór umm nammi namm það er góður morgunmatur;)

um klukkan 2 var svo orðið það gott veður að íþróttahúsinu var lokað og fólk farið að tjalda í dalnum, drukkið og djammað af sér allt vit, nema ólöf sem vann bara og vann fyrir ferðinni.

daginn eftir var fengið sér aðeins of mikið af vökva í morgunmat, sem saman stóð af bjór, bláum ópal og að sjálfsögðu tequila þannig að maður dó bara um klukkan 2 og lifnaði ekki við fyrr en um 4 þá var bara haldið áfram að drekka.

svo um kvöldið fór tjaldið að losna eitthvað og á endanum fauk það:$. og þá nótt varð sumum soldið kallt því ólöf var bara að huxa um sjálfa sig og fór með lyklana af bílnum bara í bæinn svo sumir gátu ekki farið í þur föt og náð sér í teppi og fengið sér bjór. sofa hvað er það:$

svo á sunnudeiginum var bara farið í sturtu og klætt sig í blaut föt og brunað út á flugvöll til að ná í sæta strákinn en þá hringdi hann og sagði að það væru bara 50% líkur á að það yrði fogið:evil: þannig að við fengum bara eitthvað fólk til að koma með okkur aftur í bæinn og að sjálfsögðu borguðu þau:$.

Bara svo allir viti þá er hægt að villast í eyjum, við rósa sönnuðum það.

en þegar við vorum á leiðinni með dekkjabílnum sem við fundum á leiðinni var hringt og staðfest að það yrði flogið fórum við beina leið út á flugvöll og biðum og biðum þar þangað til að flugvélin kæmi frá reyjavík og elli kæmi út:haha::haha::haha:. þegar komum svo aftur í bæinn þá fórum við og fengu okkur að borða, ekki er það frásögu færandi nema elli greyið fékk ekki matinn sinn fyrr en eftir rúmann 11/2 tíma. hvað er þatta eiginlega með hann:S

hehe svo verð ég bara að segja ykkur eitt, það hellt gæslumaður að ég væri að nauðga ella þegar ég var að nudda á honum bakið, spurði meira að segja ella hvort þetta væir með hanns leyfi æ þetta var bara eitthvað svo fyndið, en svo var bara farið á brekkusönginn og hort á ljósin, vá hvað þau voru flott, svo var bara drukkið meira.

en á milli þessara atriða var bara drukkið og djammað, og þeir sem ekki hafa farið til eyja þá segi ég bara FARIÐ þetta var eitthvað sem ALLIR þurfa að prófa.

Svo má ekki gleyma honum Berki sem leyfði okkur að gista í íbúðinni sem hann var með, takk takk þú bjargaðir mér alveg.

svo var bara skellt sér í herjólf með ógleði í gleðinni hehe, brunað til keflavíkur, stoppað smá stund og brunað svo til ak, og get alveg sagt það að ég hef aldrei á æfin minn verið jafn þreitt.

uff átti þatta ekki að vera stutt frásögn:$ jæja þeir sem nenntu að lesa þetta eiga hrós skilið en ég held að ég skelli mér út í góða veðrið núna og skrifa meira seinna bæbæ


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.07.2006 19:04:38 / jonan

Hvað er málið með ríkið á Akureyri ???

Hvað er málið með þetta þjóðhátiðarlag, er ekki í lagi með þetta fólk sem velur það þetta er bara hreinn og beinn hryllingur, en það mun nú samt ekki skipta öllu máli, því skemmtilegast fólkið mun vera á svæðinu eftir aðeins 7 daga :haha: og útilegan í Hvamstanga eftir 22 daga.

Ég er meira að segja byrjuð að taka mig til fyrir Herjólfsdalinn og komin langt með það. Og í því stússi mínu í dag komst ég að því að ríkið á Akureyri er bara mjög svo lélegt og er ég bara mjög mjög hneiksluð. ÞAÐ ER EKKI SELT TEQUILA. Hvað er málið ég sem hélt að þetta væri höfuðstaður norðurlands:!::!::!: og besti drykkurinn ekki seldur:evil:.

Æ nenni ekki að skrifa meira skrifa meira seinna


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2006 18:17:22 / jonan

í sól og sumaryl

já þá er enn einni helginni að ljúka, ég bara búin að hafa hana rólega. Elli kom í heimsókn og höfðum við það bara rólegt, reindar var ég að vinna á föstudaginn þannig að hann þurfti bara að láta sér leiðast þá, alltaf jafn gaman að heimsækja mig:$ en var í fríi í gær og elduðum við 4 rétta máltíð sem byrjaði á grillsteiktum humri og endaði á súkkulaðiköku, getur ekki verið betra:haha:. Ætluðum síðan í pottaparty en svo var hætt við það svo við höfðum það bara notalegt hérna heima

svo komst ég að því að ég veit meira um bíla en Elli :haha: bara gaman að því, en bíllinn hans bilaði og lagði hann því á stað 2 tímum eftir áætlun en það hlítur að reddast.

Það sem framundan er hjá mér:

að sjálfsögðu þjóðhátið í eyjum sem hefur ekki farið fram hjá neinum:haha::haha: en leggjum við af stað með Herjólfi á fimmtudaginn eftir viku aðeins 11 dagar.:haha::haha::haha:

svo er á planinu að fara í útilegu hálfum mánuði á eftir versló og er búið að skoða vel Hvamstanga þannig að ef þið vitið um eitthvað skemmtilegt að gera þar í kring endilega látið mig vita.

svo er bara verið að klára samninginn 31 ágúst og verður þá svaðalegt partý því þá verð ég orðinn alvöru kokkur:haha::haha: og ef einhver veit um starf fyrir mig í kringum keflavík eða rvk þá endilega látið mig vita:haha::haha::haha::haha:

Held líka að Hrafnhildur sé búin að segja upp blogginu og sé með öllu hætt að blogga og munum við syrgja það:cry::cry:

jæja annars er nú ekkert að frétta hjá mér nema bara sól og sumar alltaf hér á ak.


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 00:23:48 / jonan

komin norður eftir frábæra helgi

jæja fyrst helmingurinn af eigendum þessarar bloggsíðu er hætt að blogga verð ég bara að vera duglegri.

Það sem á daga mína hafa drifið, eða hvað segir maður:$.

talvan mín biliði í fimmta skiptið:evil:

Elli átti afmæli á miðvikudaginn síðasta og varð hann 29 ár. Til hamingju elli loksins orðin stór strákur:haha:.  Ég fór að sjálfsögðu suður um helgina og var dúndur partý á föstudagskvöldið og gaf ég honum rauðan gstreng8) hehe og stelpurnar gáfu honum bleika brók sem var geðveikt flott:haha: svo fékk hann miðann sinn til eyja og vonandi getur hann notað hann eitthvað:D. Svo er sagt að maður eigi að gefa eitthvað sem manni langar í sjálfum svo ég gaf honum gistingu á flottasta hóteli landsins ásamt kvöldverði og að sjálfsögðu fyrir 2;).

Á laugardaginn fór ég í brúðkaup sem var fínt nema ég þekkti nákvæmlega eina mannesku á svæðinu og var dregin upp í einhvern leik:S

Fyrir sunnan komst ég að því að Hrafnhildur er á lífi:haha:, en henni langar að einhverjum hluta ekkert að vera hér á íslandi heldur vera í danmörku:$ skil þetta ekki ég sem er hérna;)

annars er nú ekkert mikið að frétta af mér nema ég er komin með rautt far eftir sólina:haha: og talvan mín komin í lag og síðast enn ekki síst er að það eru bara 25 dagar í eyjar og allir búnir að kaupa miða:haha:

bæbæ


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6